PET EXPO 2027 Á ÁSVELLIR. HAFNARFIRÐI
PET EXPO 2027
PET EXPO 2027 verður fjölbreytt og lifandi sýning fyrir alla sem eiga gæludýr, elska dýr eða vilja kynnast því nýjasta sem tengist gæludýrunum okkar.
Á einum stað koma saman fyrirtæki, sérfræðingar, félög og þjónustuaðilar með fjölbreytt úrval af vörum, þjónustu og nýjungum fyrir hunda, ketti og önnur gæludýr.
Gestir geta kynnt sér allt frá fóðri, heilsu og umhirðu til búnaðar, leikfanga, þjálfunar, tækni og þjónustu, auk þess að njóta fjölbreyttrar dagskrár, fræðslu, kynninga og skemmtilegrar upplifunar fyrir alla fjölskylduna.
PET EXPO verður vettvangur þar sem gæludýraeigendur, dýravinir og gæludýrageirinn mætast – þrír dagar fullir af nýjungum, fróðleik, upplifun og skemmtun.
PET EXPO 2027 fer fram á Ásvöllum í Hafnarfirði
26.–28. febrúar 2027
Komdu og upplifðu allt það besta fyrir gæludýrin okkar – á einum stað.
Allt neðangreint og meira á FIT & RUN
Fatnaður og búnaður
Íþróttaföt, hlaupaskór, æfingabúnaður, snjalltæki og heyrnatól
Æfingar og þjálfun
Hlaupaklúbbar, æfinga- og þjálfunarstöðvar, einkaþjálfarar og æfingaforrit
Ferðir og útivist
Hlaupaferðir innanlands og erlendis, gönguferðir, hvatferðir
Heilsa og meðferðir
Hlaupaklúbbar, æfinga- og þjálfunarstöðvar, einkaþjálfarar og æfingaforrit
Þjónusta og tækni
Hugbúnaður fyrir íþróttafólk, tryggingafélög, heilsutímarit, æfingaforrit
Næring og vörur
Hollusta, orka og bragð – allt sem þú þarft fyrir líkama og sál
Niðurstöður viðhorfskönnunar meðal gesta FIT&RUN
Gerðar hafa verið kannanir meðal gesta sýningarinnar þar sem þeir eru spurðir um hvað skiptir þá mestu máli, með það að markmiði að koma enn betur til móts við væntingar þeirra.
Niðurstöður síðustu könnunar voru afar jákvæðar og sýna svart á hvítu að sýningin nær að skapa bæði ánægju og virði fyrir gesti og þátttakendur. Sérstaklega vakti athygli hversu hátt hlutfall gesta nýtti tækifærið til að versla vörur eða þjónustu á staðnum:
-
61,2% gesta keyptu vörur og/eða þjónustu á sýningunni
-
87,8% lýstu því yfir að þeir væru „Mjög ánægðir“ eða „Ánægðir“ með sýninguna
-
88,7% töldu vöru- og þjónustuframboðið „Mjög gott“ eða „Gott“
Þessar niðurstöður eru sterkar vísbendingar um að sýningin sé ekki aðeins að uppfylla væntingar, heldur einnig að skapa lifandi vettvang þar sem gestir fá jákvæða upplifun, fjölbreytt val og raunverulegt virði fyrir sinn tíma og fjármuni.